Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
11. desember 2009 10:25

jólaundirbúningur

Jæja, nú er jólaundirbúningur á leikskólanum að verða búinn. það er búið að vera nóg að gera hjá börnunum, og litli kjallarinn okkar hefur sjaldan litið betur út :) og börnin búin að vera svo dugleg :)

 

Á þriðjudaginn verður jólaballið okkar, og byrjar það klukkan 14:30.

 

Og svo styttist bara óðum í jólin og viljum við óska ykkur öllum gleðilegra jóla :)

meira...
25. nóvember 2009 10:10

Leiksýning og starfsdagur

Grýla og jólasveinarnir
Í dag, miðvikudaginn 25. nóvember 

Image 

Kvenfélag Stafholtstungna býður leikskólanum og krökkunum í 1. - 3. bekk á leiksýninguna Á

 Grýla og jólasveinarnir. Sýningin kemur með leikhúsinu "Leikhús í tösku" . Sýningin er fyrir 1.-3. Í sýningunni leiðir gömul kona litla stúlku, sem týnst hefur í jólaösinni, í leikferð og leikur alla jólasveinana og Grýlu og flytur um leið gamla vísu um Grýlu, Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötlum o.fl." Sýningin er sögð fjörug en samt eru engin læti á Grýlu og jólasveinunum. Leikstjóri og leikari er Þórdís Arnljótsdóttir

 

 

Föstudaginn 4. desember verður leikskólinn lokaður vegna starfsdags.

meira...
2. nóvember 2009 02:10

nóvember 2009

Loksins komum við okkur af stað með heimasíðuna! :) ýmislegt búið að gerast síðan leikskólinn opnaði í ágúst. Ármann Bjarni og Sigurlaug fóru í fyrsta bekk og í staðin fengum við Sigurgeir Erik og eru núna 9 börn á leikskólanum :)

 

það hafa margir átt afmæli frá því að leikskólinn byrjaði:

Elísa varð 5 ára 31 júlí og hélt uppá það í september á leikskólanum.

Sigurður Örn varð 2ja ára 31. ágúst

Hinrik Nói varð 3ja ára 22. september

Inger Elísabet varð 4ra ára 23. október

 

við erum búin að fara á brúðuleikhús, fá slökkviliðið í heimsókn og höfum föndrað alveg heilan helling :) og núna styttist í jólin, ótrúlegt en satt og við erum strax farin að íhuga hvað við ætlum að gera fyrir jólin. það verður einnig vel skreytt hjá okkur þar sem Húsasmiðjan gaf okkur heilan haug af jólaskrauti :) og viljum við þakka þeim kærlega fyrir það.

meira...
8. júní 2009 01:38

Sumarfrí

jæja.. þá er síðasti dagur leikskólans fyrir sumarfrí á morgun, þriðjudag, og erum við nú á fullu að flytja okkur aftur niður í kjallara. krökkunum finnst þetta mjög spennandi og fá þau að sjálfsögðu að hjálpa okkur að flytja dótið.

 

Það eru komnar inn myndir frá vorferðinni sem var á laugardaginn síðastliðinn.

 

en vonandi hafa allir það gott í sumarfríinu og sjáumst svo eldhress í lok sumars í "nýju" húsnæði leikskólans, í kjallaranum.

meira...
4. maí 2009 09:46

útskriftarferð í vatnaskóg 2009

fimmtudaginn 30 apríl fóru Ármann Bjarni og Sigurlaug í útskriftarferð í Vatnaskóg með krökkum sem eru í elstu deildinni, kattholti, á leikskólanum klettaborg. Berglind fór með Ármann og sigurlaugu í borgarnes þar sem þau skoðuðu aðeins deildina í klettaborg, svo fórum þau með rútu í vatnaskóg. ferðin gekk mjög vel og skemmtu þau sér konunglega ;)

 

meira...
desember 2009