Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður

Leikskólinn á Varmalandi

Leikskólinn á Varmalandi er í kjallara grunnskólahússins. Leikskólinn er ein deild fyrir börn frá 18 mánaða til 6 ára.

 

Leikskólinn starfar samkvæmt lögum um leikskóla nr. 78/1994 og ,,Aðalnámskrá leikskóla" sem gefin var út í júní 1999. Hún er fagleg stefnumörkun og lýsir sameiginlegum markmiðum og kröfum sem eiga við um allt leikskólastarf. Aðalnámskrá markar ákveðin ramma um leikskólastarf og er undirstaða frekari skólanámskrárgerðar. Í aðalnámskrá leikskóla er lögð áhersla á að efla alhliða þroska barnsins, heilbrigða lífshætti og lífsviðhorf, lífsleikni og sjálfstraust þess. Í leikskóla skal barnið ávallt vera í brennidepli og gert er ráð fyrir að barnið sé hæfileikaríkur og getumikill einstaklingur sem kann, getur og vill. Lög um leikskóla, reglugerð um starfsemi leikskóla og Aðalnámskrá leikskóla er að finna á netinu, slóðin er: www.mrn.stjr.is

 

Leið til leikskólanáms

Ein leið til náms er svo kölluð könnunaraðferð, við á leikskólanum á Varmalandi höfum ákveðið að vinna samkvæmt henni.

Könnunaraðferðinni er skipt upp í þrjú stig, upphaf, miðju og endi.

 

1. stig: Viðfangsefnið er afmarkað. Kennarinn ræðir við börnin um rannsóknarefnið til að komast að því hvaða reynslu þau hafi og hvað þau viti um efnið.

 

2. stig: Á þessu stigi fer rannsóknarvinnan fram. Börnin leita svara, athuga, skrá og ræða um verkefnið. einnig fá börnin tækifæri til að fara í vettvangsferðir og því er jafnvel komið í kring að þau geti talað við sérfræðinga um efnið.

Kennarinn þarf semsagt að leiða verkefnið, hvetja börnin áfram, styðja þau og fá þau til að nýta þá þekkingu sem þau búa yfir (Katz og Chard 1990:80-81)

 

3. stig: Endurskoðun og mat fer fram á þessu stigi. Mikilvægt er að þau fái tækifæri til að koma hugmyndum og vinnu sinni á framfæri (Katz og Chard 1990:82-84)

 

Þegar könnunaraðferðin er notuð er mikilvægt að hafa í huga námssvið leikskóla samkvæmt Aðalnámskránni (1990:19): hreyfingu, málrækt, myndsköpun, tónlist, náttúru og umhverfi og samfélag og menningu og flétta þau inn í vinnuna.

 

Hlutverk kennarans er að hjálpa börnunum að koma auga á það sem er að gerast í nánasta umhverfi þeirra. hann þarf að vera athugull og áhugasamur, geta bent börnunum á ýmis smáatriði og leiða þau þannig áfram í rannsókn sinni.

desember 2009